Verðbólgan 6,5% í janúar – ekki meiri í 20 mánuði
Verðlag hækkaði um 0,28% frá desember og mælist ársverðbólga nú 6,5%. Þetta kemur fram í mælingu Hagstofunnar á vísitölu neysluverðs sem birt var í morgun. Þetta er mesta verðbólga síðan í maí 2010 en þá var hún 7,5%. Hækkanir á ýmsum þjónustugjöldum og álögum hjá ríki og sveitarfélögum skýra að mestu þessa hækkun auk hækkana á bensíni, matvöru, áfengi og tóbaki. Útsölur og lækkun á flugfargjöldum vega hins vegar aðeins upp á móti hækkunum.
Ályktun formannfundur Starfsgreinasambands Íslands haldinn þann 18 janúar 2012
Formannafundur SGS samþykkti eftirfarandi ályktun:
„Formannfundur Starfsgreinasambands Íslands haldinn þann 18. janúar 2012 lýsir yfir miklum vonbrigðum með vanefndir ríkisstjórnarinnar á loforðum sem gefin voru í tengslum við undirritun kjarasamninga. Aðilar vinnumarkaðarins hafa staðið við öll ákvæði samninga en það er ólíðandi að kjarasamningar skuli vera í uppnámi vegna vanefnda ríkisstjórnarinnar. Það er ámælisvert að ríkisstjórnin skuli enn ekki hafa staðið við fyrirheit sín og að íslenskt verkafólk geti ekki treyst yfirlýsingum hennar. Formannafundur Starfsgreinasambands Íslands krefst þess að ríkisstjórnin efni loforð sín tafarlaust.
Starfshópur skal móta nýtt framtíðarskipulag SGS
18. október 2011. Þing Starfsgreinasambands Íslands samþykkti í gær að skipa 7 manna starfshóp sem á að fara í ítarlega vinnu við að móta framtíðarskipulag Starfsgreinasambandsins. Störfum þessa hóps lýkur á framhaldsþingi sem haldið verður í síðasta lagi í maí 2012. Verkefni starfshópsins er að fara yfir framtíðarskipulag SGS, m.a. endurskoðun á hlutverki, starfsemi, stjórnkerfi, rekstri og lögum sambandsins með það að markmiði að einfalda stjórnkerfið, draga úr rekstrarkostnaði og færa starfsemi sambandsins að breyttu umhverfi aðildarfélaganna.
Ályktanir þings Starfsgreinasambands Íslands
Á þingi Starfsgreinassamband Ísland daganna 13-14 október síðastliðinn voru samþykktar sjö ályktanir er varða hagsmuni verkafólks á Íslandi. Meðfylgjandi í viðhengi eru allar ályktanirnar, og hér að neðan er stutt samantekt á innihaldi þeirra:
- Þing norræna matvælasambandsins hafið á Selfossi
- Göngum ekki í störf leikskólakennara
- SGS - Nýr framkvæmdastjóri
- Kynningarfundur 19 maí 2011
- New Collective Agreement
- Helstu atriði nýs kjarasamnings
- Námskeið um viðhald og verðmæti fasteigna
- Dagskrá 1. maí 2011
- Heimurinn okkar
- 10 ára starfsafmæli Landsmenntar og Starfsafls
- Stutt frétt af kjaraviðræðum.
- Ný skoðanakönnun - langflestir vilja sameiginlega launastefnu
